Óskað eftir tilboðum í lagnir og burðarlag á Kríutanga og bílastæði á Suðurtanga
09.04.2024
Útboð og framkvæmdir
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið Kríutangi og bílastæði á Suðurtanga, lagnir og burðarlag.
Um er að ræða gerð nýrrar götu, Kríutanga og hluta af Hrafnatanga með niðurfallalögnum og niðurföllum, styrkar- og burðarlagi undir malbik. Í Hrafnatanga skal jafnframt leggja vatnslögn og holræsalagnir. Gerð bílastæða við Kríutanga fyrir rútur, leggja niðurfallalagnir ásamt styrktar- og burðarlagi.
Helstu stærðir eru:
- Gröftur í götustæði 3800 m³
- Holræsalagnir 990 m
- Styrktarlag 2400 m³
- Burðarlag 1200 m³
Verkinu skal vera að fullu lokið þann 6. ágúst 2024.
Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti: aj@verkis.is til þeirra sem þess óska frá og með 9. apríl 2024.
Tilboðin verða opnuð í fundarsal Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu, 2. hæð, 26. apríl 2024 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.