Óskað eftir tilboðum í endurgerð grunnskólalóðar á Flateyri
18.05.2018
Fréttir
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Flateyri endurgerð lóðar“. Um er að ræða uppsetningu leiktækja, gróðurbeða, gróðursetningu, uppsetningar girðinga ásamt uppúrgröft, fyllingu og lagningu efra burðarlags .
Helstu stærðir eru:
Regnvatnslagnir 40 m
Efra burðarlag 52 m³
Þökulögn 567 m²
Verkinu skal vera að fullu lokið í 22. ágúst 2018.
Útboðsgögn verða til afhendingar á minnislykli hjá Verkís, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði frá og með 18. maí 2018. Tilboðin verða opnuð hjá Verkís í Stjórnsýsluhúsinu, 3. hæð, 29. maí 2018 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.