Óskað eftir tilboðum í endurbætur vegna dægradvalar

Tækniþjónusta Vestfjarða ehf,  fyrir hönd Ísafjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í að útbúa aðstöðu fyrir Dægradvöl í suðurálmu Grunnskólans á Ísafirði. Verkið felur í sér breytingar innanhúss í húsnæði Grunnskólans við Aðalstræti á Ísafirði.  Setja skal upp milligólf úr timbri í suðurenda skólahússins.  Fjarlægja glerhandrið. Reisa skal innveggi, klæða loft og gólf, setja upp innihurðir og ganga að fullu frá húsnæðinu. Einnig þarf að breyta raflögnum,  setja upp ljós og dúkleggja gólf.

Nánari upplýsingar má fá á útboðsvef Ísafjarðarbæjar, eða með því að smella hér.