Óskað eftir tilboðum í endurbætur á þaki yfir íþróttasal íþróttahússins á Flateyri.
Íþróttahús, Flateyri.
Þakviðgerð
Almennt útboð
Tækniþjónusta Vestfjarða ehf, fyrir hönd Ísafjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í endurbætur á þaki yfir íþróttasal íþróttahússins á Flateyri.
Verkkaupi: Ísafjarðarbær, kt: 540596-2639.
Verkefnalýsing:
Verkið felur í sér rif á þakdúk og lofttúðum og endurnýjun á borðaklæðningu ef þess er talin þörf. Smíða skal loftstokk á núverandi þak til að bæta loftun og leggja svo nýtt tvöfalt lag af bræddum þakpappa yfir þakflöt ásamt kantfrágangi með stáláfellum.
Helstu magntölur verksins eru eftirfarandi:
- Timburlektur 144 m
- Loftstokkur á þak 18 m
- Stáláfellur 110 m
- Rífa þakdúk 508 m2
- Leggja þakpappa 508 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 28. september 2018.
Framkvæmdir geta hafist strax eftir að verksamningur hefur verið undirritaður.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tækniþjónustu Vestfjarða, Aðalstræti 26, Ísafirði
frá og með 15. júní 2018.
Tilboðin verða opnuð hjá Tækniþjónustu Vestfjarða, föstudaginn 28. júní n.k. kl: 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.