Opnun sundlaugarinnar á Flateyri frestast

Vonir stóðu til að hægt yrði að opna sundlaugina á Flateyri nú um helgina en ljóst er að opnun mun enn frestast um nokkra daga.

Málningarvinnu er að ljúka og þegar öll málning er þornuð er næsta skref að þrífa húsnæðið hátt og lágt. Þá er hægt að fylla laugina af vatni og þegar það hefur náð réttu hitastigi verður aftur hægt að bjóða gesti velkomna í sund. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og eignasviði verður vonandi hægt að opna um miðja næstu viku en tilkynnt verður um nákvæma dagsetningu þegar hún liggur fyrir.