Opnun myndlistarsýningar Dagrúnar Matthíasdóttur

Dagrún Matthíasdóttir opnar myndlistarsýninguna HEIMA í Bryggjusal Edinborgarhússins á ísafirði föstudaginn 1.júní kl. 17. Á sýningunni HEIMA sýnir Dagrún olíumálverk, grafíkverk og skissur. Sýninguna HEIMA tengir hún við náttúrufegurðina og minningar að vestan með persónulegri nálgun. Olíumálverkin eru landslagsverk og notkun lita og pensilskriftar er frjálsleg í bland við nákvæmni í teikningu. 

Dagrún Matthíasdóttir er myndlistakona frá Ísafirði, búsett á Akureyri. Dagrún er mjög virk í listalífinu norðan heiða og hefur haldið utan um sýningarhald í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. Hún hefur einnig vakið athygli með listahópnum RÖSK með gjörningum, skúlptúrum og listviðburðum. Dagrún hefur haldið 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Einnig hefur hún tekið þátt í listaverkefnum eins og Kunst I Natur í Noregi, gestadvöl í Ungverjalandi og á Máritíus í SA Afríku. 

Dagrún lærði á fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri, Nútímafræði og kennslufræði í Háskólanum á Akureyri, með viðkomu í listfræði sem skiptinemi í Háskóla Íslands/LHÍ.

Sýningin stendur til 18.júní – Allir velkomnir.

Heimasíða Dagrúnarhér 

Facebook síða viðburðar hér

Heimasíða Edinborgarhúss hér