Opnað fyrir umsóknir um styrki úr Þróunarverkefnasjóði Flateyrar 2022

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarverkefnasjóð Flateyrar fyrir styrkjum til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Flateyri og Önundarfirði fyrir árið 2022. 

Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu á Flateyri og Önundarfirði eru hvattir til að sækja um.

Frekari upplýsingar og tengil á umsóknareyðublað er að finna á uppýsingasíðu Vestfjarðastofu Þróunarsjóður Flateyrar | Vestfjarðastofa (vestfirdir.is) eða hjá verkefnastjóra á Flateyri í síma 8329191.

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2022 kl. 16.00.

Þetta er í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðinum sem styrkir nýsköpunar- og samfélagsverkefni sem efla atvinnu- og mannlíf á Flateyri og Önundarfirði og verða nú allt að 20 miljónir til úthlutunar. Mat verkefna tekur mið af niðurstöðum íbúaþings á Flateyri og markmiðum Sóknaráætlunar Vestfjarða. Umsóknir sem berast í sjóðinn verða metnar af verkefnisstjórn byggðarlagsins sem skipuð er fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Hverfisráði Önundarfjarðar.