Opin bók í Edinborgarhúsinu
16.11.2017
Fréttir
Laugardaginn 18. nóvember, klukkan 16:00 verður bókmenntavakan Opin bók haldin í Edinborgarsal Edinborgarhússins á Ísafirði. Opin bók er árviss viðburður í menningarlífnu á Ísafirði þar sem rithöfundar koma fram og lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. Boðið verður upp á kaffi og smákökur undir lestrinum.
Þeir höfundar sem koma fram að þessu sinni eru:
- Vilborg Davíðsdóttir, sem les úr bókinni Blóðug jörð Bókin er þriðja bók hennar um landnámskonuna Auði djúpúðgu.
- Adolf Smári Unnarsson sem les úr fyrstu skáldsögu sinni, Um lífsspeki Abba og Tolteka (eða líf mitt sem Olof Palme)
- Kristín Eiríksdóttir les upp úr bókinni Elín, ýmislegt. Bókin er margslungin og listavel ofin saga um mæður og dætur, ofbeldi og áföll, vald og gleymsku.
- Ómar Valgeir Jónsson les upp úr bókinni Vitavörðurinn. Sagan af vitaverðinum á Galtarvita sem handtekinn var af breska hernum fyrir að skjóta skjólshúsi yfir þýskan flóttamann. Heimsvaldastefna og íslensk gestrisni.
- Þórarinn Leifsson les upp úr bókinni Kaldakol sem er gráglettinn frásögn af örlögum smáþjóðar á hjara veraldar.
Nánari upplýsinar um höfundana og bækur þeirra eru á síðum Edinborgarhússins hér og á Facebook síðu viðburðarins hér