Ólympíufarinn boðinn velkominn heim
16.03.2022
Fréttir
Í vikunni gafst loksins færi á að bjóða ólympíufarann okkar hann Snorra velkominn heim. Móttakan fór fram á leikskóladeildinni Tanga á Ísafirði, en krakkarnir þar héldu einmitt sína eigin Ólympíuleika á dögunum.
Snorri sat fyrir svörum og var meðal annars spurður hvenær hann hefði byrjað á gönguskíðum og hvernig hann væri svona duglegur. Þá var hann spurður hvaða íþróttanammi honum fyndist best. Svarið var „snakk og súkkulaði“ sem vakti mikla lukku hjá hópnum.
Krakkarnir fengu svo að skoða keppnisnúmer Snorra og ýmsa minjagripi sem komu með heim frá Beijing.