Nýtt: Viðburðadagatal á vef Ísafjarðarbæjar

Nú hefur verið sett upp viðburðadagatal á vef Ísafjarðarbæjar þar sem hægt er að skrá viðburði sem eru framundan á svæðinu.

Íbúar eru hvattir til að vera duglegir að fylgjast með dagatalinu og auðvitað senda inn sína viðburði.

Við skráningu þarf að koma fram titill viðburðar, viðburðahaldari, tíma- og dagsetning og svo er skemmtilegast ef mynd fylgir með.

Innsendingarsíða