Nýr bíll hjá Slökkviliði Ísafjarðarbæjar
02.09.2021
Fréttir
![Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri, við nýja bílinn.](/static/news/md/nyr-bill-slokkvilid.jpg)
Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri, við nýja bílinn.
Miðvikudaginn 1. september fékk Slökkvilið Ísafjarðarbæjar afhentan nýjan bíl af gerðinni Iveco 4x4 Fast Response. Bíllinn er sérútbúinn til að geta athafnað sig í jarðgöngum og er með svo kölluðu One-Seven froðukerfi sem er nýjasta gerðin á markaðnum. Einnig eru einnig innbyggðir loftbankar fyrir alla í bílnum og rafhlöðudrifinn björgunarbúnaður til að opna bílflök.
Í bílnum er pláss fyrir fimm slökkviliðsmenn og verður farið á honum í öll útköll sem berast slökkviliðinu, hvort sem þau eru vegna elds, reyks eða umferðaslyss.