Ný strætóáætlun

Ný áætlun almenningsvagna tekur gildi í Ísafjarðarbæ þann 1. júní. Helsta breytingin er seinkun á miðferð til Flateyrar/Þingeyrar sem einnig hefur áhrif á miðferð til og frá Holtahverfi. Er þessi breyting gerð til að auðvelda grunnskólakrökkum frá Flateyri og Þingeyri að sækja íþrótta- og tómstundastarf á Ísafirði.

Bætt hefur verið við aukaferð um hádegisbil þrjá daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga til Suðureyrar, Hnífsdals og Holtahverfis. Þá er kominn kvöldstrætó í Skutulsfirði þrjú kvöld í viku í tengslum við opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar á Ísafirði, en hann verður þó eðli málsins samkvæmt ekki starfræktur í sumar.