Námskeið í skjalastjórn og skjalavörslu
Héraðsskjalasafnið á Ísafirði og Þjóðskjalasafn Íslands standa fyrir námskeiði um skjalastjórn og skjalavörslu fimmtudaginn 3. nóvember 2016.
Námskeiðið verður haldið á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.
Dagskráin hefst kl 10:15 og lýkur kl 16:30.
Fjallað verður um eftirfarandi efni:
Lagaumhverfi opinberrar skjalastjórnar og skjalavörslu.
Skráning mála, málalyklar og málasafn.
Grisjun skjala.
Rafræn skjalavarsla.
Skjalavistunaráætlun.
Frágangur, skráning og afhending pappírsskjala.
Kennarar á námskeiðinu verða:
Njörður Sigurðsson og Árni Jóhannsson frá Þjóðskjalasafni Íslands.
Jóna Símonía Bjarnadóttir frá Héraðsskjalasafninu á Ísafirði.
Verð 12.500 kr (innifalið: kaffiveitingar og léttur hádegisverður).
Þátttakendur skrá sig með því að senda póst á netfangið: jona@isafjordur.is.
Nánari upplýsingar hjá Jónu Símoníu Bjarnadóttur í síma: 450-8228 og 862-9908.