Menningarstyrkir - Frestur rennur út í dag
15.03.2016
Fréttir
Við minnum á að frestur til að skila inn umsóknum um styrki til menningarmála rennur út í dag, þriðjudaginn 15. mars. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is.
Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.
Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála.