Mandolin í Hömrum

Hljómsveitin Mandolin heldur tónleika í Hömrum á Ísafirði klukkan 17 á laugardag.

Mandólín er gleðisveit og hefur spilað víða um land við góðar undirtektir. Komið og hlýðið á seiðandi tónavef ofinn úr fjölskrúðugum þráðum, skreyttan söngperlum frá framandi slóðum. 

Á efnisskránni er tónlist úr smiðjum Shostakovich, Kurt Weill og Astor Piazzolla í bland við sprellfjöruga klezmertónlist, finnska tangóa, ameríska angurværð og balkanstuð eins og það gerist best. Fyrir utan allt hitt. 

Tónleikarnir hefjast klukkan 17 og aðgangseyrir er 3000 krónur. Eldri borgarar og öryrkjar 2000 krónur, ókeypis inn fyrir 12 ára og yngri.

Hljómsveitina skipa:

Elísabet Indra Ragnarsdóttir, fiðla
Guðrún Árnadóttir, fiðla og söngur
Martin Kollmar, klarinett og söngur
Óskar Sturluson, gítar og söngur
Ástvaldur Traustason, harmónika
Sigríður Ásta Árnadóttir, harmónika og söngur
Bjarni Bragi Kjartansson, kontrabassi