Lyklaskipti í Funa

Formleg lyklaskipti fóru fram í gærmorgun þegar starfsmenn Kubbs afhentu starfsmönnum Gámaþjónustu Vestfjarða völdin yfir móttökustöðinni Funa. Eins og fram hefur komið þá hefur verið samið við Gámaþjónustu Vestfjarða um sorphirðu og –förgun næstu árin og hlökkum við til farsæls samstarfs um leið og við þökkum Kubbi kærlega fyrir þjónustuna í gegnum árin.