Lokað í sundlaug Suðureyrar vegna bilunar

Sundlaugin á Suðureyri hefur verið lokuð í nokkurn tíma og verður eitthvað áfram, vegna bilunar í dælu. Orkubú Vestfjarða hefur pantað nýja dælu en þar sem hún var ekki fáanleg innanlands hefur viðgerð tafist. Vonast er til að dælan komi til landsins á næstu dögum og að hægt verði að opna aftur um miðja næstu viku. Nákvæm dagsetning er þó ekki á hreinu og verður því tilkynnt um opnunina sérstaklega.

Í ljósi þessarar löngu lokunar var tækifæri til viðhalds gripið og farið í viðgerð og málningarvinnu á vaðlauginni.