Loka þarf Austurvegi í næstu viku

Vegna umfangsmikilla viðgerða á vatnslögnum þarf að loka Austurvegi milli Kaupfélagshúss (Kaupmaðurinn, Craft-sport) og Ísafjarðarbíós í nokkra daga. Lokað verður að morgni mánudagsins 14. maí, eftir að kennsla er hafin í Grunnskólanum, og eru foreldrar og aðrir beðnir um að skilja ekki bíla sína eftir við þennan götuhluta. Eins og áður segir er viðgerðin umfangsmikil og má gera ráð fyrir að lokunin vari alla vikuna. Þá ná framkvæmdir út í Hafnarstrætið sem verður þó áfram opið fyrir umferð, en ökumenn eru beðnir um að sýna tillitsemi. Mögulegt verður að aka Norðurveg frá Fjarðarstræti og komast þaðan inn Austurveg/Aðalstræti, þ.e.a.s. utan skólatíma.