Lögheimilisskráning vegna sveitarstjórnakosninga
![](/static/news/md/1525080282_if-merkilandscape.jpg)
Laugardaginn 5. maí 2018 er viðmiðunardagur kjörskrár vegna kosninga til sveitarstjórna sem hafa verið auglýstar þann 26. maí nk. Þetta þýðir að íbúar þurfa að uppfæra lögheimilisskráningu sína í síðasta lagi föstudaginn 4. maí eigi breytingin að hafa áhrif á það hvar fólk hefur kosningarétt.
Kosningarétt við sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí n.k. eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag. Íslenskir ríkisborgarar sem stunda nám á Norðurlöndunum og sem þurft hafa að flytja lögheimili sitt þangað vegna ákvæða samnings Norðurlandanna um almannaskráningu, glata ekki kosningarétti sínum vegna þess. Að því sögðu skal minnt á nýtt fyrirkomulag þar sem námsmenn á Norðurlöndunum þurfa nú að tilkynna sig og senda staðfestingu á námi til Þjóðskrár Íslands til þess að vera skráðir á kjörskrá, https://www.skra.is/um-okkur/frettir/frett/2018/02/15/Skraning-namsmanna-a-Nordurlondum-a-kjorskra/
Einnig eiga kosningarétt danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, sem og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, enda hafi þeir náð 18 ára aldri á kjördag og eiga skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, https://www.stjornarradid.is/verkefni/kosningar/sveitarstjornarkosningar-2018/kjosendur-leidbeiningar/ .
Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 5. maí n.k. mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn og þurfa því tilkynningar um lögheimilisbreytingar að berast Þjóðskrá Íslands í síðasta lagi 4. maí eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.