Ljósleiðaravæðing í dreifbýli

Ísafjarðarbær er með í athugun gerð samninga um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli í sveitarfélaginu. Ef af verður mun verkefnið verða unnið í áföngum, taka nokkur ár og felast í að koma að lágmarki á ljósleiðaratengingu á þá staði sem hverju sinni uppfylla skilyrði sem Fjarskiptasjóður setur um þátttöku sjóðsins á næstu árum.

Auglýst er eftir fjarskiptafélögum sem ætla sér, á markaðsforsendum, að bjóða ljósleiðaratengingar til lögheimila og annarra staða í dreifbýli í sveitarfélaginu næstu 3 ár. Sé fyrir hendi ásetningur um slíkt, óskar Ísafjarðarbær eftir upplýsingum um fyrirhugaða uppbyggingu en að öðrum kosti kemur til greina að styrkja, eða hafa milligöngu um styrkveitingu til verkefna sem uppfylla skilyrði. Við óskum eftir því að þau fjarskiptafyrirtæki sem eru áhugasöm hafi samband við sveitarfélagið í gegnum netfangið taeknideild@isafjordur.is fyrir klukkan 12 miðvikudaginn 25. janúar 2017

Að því gefnu að ekki sé uppi ásetningur um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli í sveitarfélaginu á markaðsforsendum hyggst Ísafjarðarbær gera samning við hæfan bjóðanda (seljanda) sem lýsir yfir áhuga á  að hanna, byggja, reka og eiga ljósleiðarastreng ásamt því sem honum tilheyrir. Samningar munu fela í sér að Ísafjarðarbær mun veita seljanda opinberan fjárhagslegan stuðning til verkefnisins eða einstakra áfanga þess. Ísafjarðarbær áskilur sér allan fyrirvara um hvort af einstökum áföngum verður, enda hefur ekki verið fullmótuð stefna um þetta verkefni.