Listamannaspjall - Álfabækur

Þriðjudaginn 2. maí verður Garason  (Guðlaugur Arason) í Safnahúsinu milli kl. 4 og 6 og segir frá verkum sínum á sýningunni Álfabækur. Verkin sýna bækur í ýmsu rými en verkin krefjast þess að áhorfandinn gefi sér góðan tíma til að skoða þau því í hverju þeirra leynist lítill verndarálfur. 

 

Rithöfundurinn Guðlaugur Arason gaf út sína fyrstu skáldsögu (Vindur, vindur vinur minn) 25 ára gamall. Síðan hefur hefur hann skrifað skáldsögur, leikrit, ljóð og tvær bækur um Kaupmannahöfn. Verk hans hafa notið mikilla vinsælda og verið verðlaunuð. Hann er því þekktari sem rithöfundur en myndlistarmaður þótt hann hafi alla tíð unnið að mydlist jöfnum höndum með skriftum. Meðal helstu bókmenntaverka hans má nefna Víkursamfélagið, Sóla, Sóla, Eldhúsmellur, Pelastikk og Gamla góða Kaupmannahöfn.