Leitað að nöfnum á stíga í Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarbær óskar eftir aðstoð íbúa við að skrásetja og finna nöfn á göngustíga sveitarfélagsins.

Stígum og útivistarvegum í sveitarfélaginu fjölgar frá ári til árs en margir þeirra eru nafnlausir þrátt fyrir að vera mikið notaðir. Til stendur að bæta úr þessu með því að safna saman upplýsingum um nöfn á stígum sem þegar eru til, auk þess að kalla eftir tillögum að nöfnum á stíga og vegi sem ekkert nafn hafa.

Helstu kostir þess að nefna stígana eru að auðvelda rötun, styrkja tengingu við nærumhverfið og undirstrika áherslu sveitarfélagsins á útivist. Þá nýtast nöfnin einnig við birtingu stafrænna gagna á til dæmis kortasjá og í opnum kortakerfum.

Íbúar sem vilja leggja verkefninu lið eru hvattir til að senda póst á postur@isafjordur.is með efnislínunni Stígar í Ísafjarðarbæ

Hér fyrir neðan eru myndir af helstu nafnlausu stígunum teiknaðir inn á kortagrunn, flokkaðir eftir þéttbýliskjörnum. Listinn er ekki tæmandi og ​ef íbúar vita um stíga sem eru notaðir og eiga jafnvel nafn má senda þá inn. Eftirfarandi er gott að hafa í huga áður en hugmyndir eru sendar inn:

  • Ef viðtekin nöfn eru nú þegar til hafa þau forgang, og þau má gjarnan senda inn líka. ​
  • Ný nöfn mega lýsa staðháttum en mega einnig heiðra einstaklinga, atburði eða félagasamtök. Vel hentar að nota viðskeytið -stígur, -gata eða -vegur. Endingar sem henta síður eru -stræti og -braut.​ 

Flateyri

Sendu skeyti á postur@isafjordur.is með efnislínunni Nafn á stíg ef þú veist hvað stígurinn heitir eða ert með hugmynd að nafni á hann. Einnig ef þú veist um stíg sem vantar á listann.

Hnífsdalur

Ísafjörður

Suðureyri

Þingeyri