Leikskólaplássum úthlutað í mars og apríl

Úthlutun á leikskólaplássum fyrir haustið hjá leikskólum Ísafjarðarbæjar, handa börnum sem fædd eru 2022 og fyrr, fer fram í mars og apríl. Foreldrar sem ekki hafa sótt um leikskólavist fyrir börnin sín eru hvattir til að senda inn umsókn sem fyrst.

Sótt er um í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.