Leikskólaplássum úthlutað í maí

Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri.
Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri.

Úthlutun á leikskólaplássum fyrir haustið hjá leikskólum Ísafjarðarbæjar, handa börnum sem fædd eru 2021 og fyrr, fer fram nú í maí. Foreldrar sem ekki hafa sótt um leikskólavist fyrir börnin sín eru hvattir til að senda inn umsókn sem fyrst.

Sótt er um í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar