Leiðindafærð og biluð grafa

Nú er færðin með allra leiðinlegasta móti, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur. Því miður bilaði grafa hjá verktaka sem hefur verið öflug í göngustígamokstri á Ísafirði og hefur það eflaust ekki farið framhjá fólki sem fór gangandi í vinnu eða skóla í morgun. Litla grafa áhaldahússins er þó í gangi og verið er að reyna að redda málunum eins og hægt er. Þangað til mælum við með stígvélum eða vel vatnsheldum gönguskóm.