Laus lóð: Stefnisgata 8 á Suðureyri
07.08.2024
Fréttir
Lóðin við Stefnisgötu 8 á Suðureyri er nú laus til umsóknar.
Umsóknir berist í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.
Stefnisgata 8 (áður 8 og 10)
Stærð lóðar er 592,87 m2. Hámarksstærð bygginga er 415,0 m2.
Í samræmi við grein 1.1. í lóðarúthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar er 10 daga umsóknarfrestur um lóðirnar og berist fleiri en ein umsókn um sömu lóð ræður hlutkesti úthlutun.
Berist engar umsóknir um tiltekna lóð færast þær á lóðalista Ísafjarðarbæjar og verður þá úthlutað til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar, líkt og kveður á um í grein 1.3 í lóðarúthlutunarreglum.