Kynningarfundur um rammaáætlun

 

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögu sinni að flokkun virkjunarkosta í Steinshúsi á Nauteyri í Ísafjarðardjúpi, 13. apríl nk, milli kl. 20-22.

 

Á fundinum mun verkefnisstjórn kynna tillögudrögin og sitja fyrir svörum að kynningu lokinni. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Fundurinn er öllum opinn og ekki er þörf á að skrá sig.

 

Fundurinn er einn af átta fundum sem verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar stendur fyrir til að kynna drög að tillögu sinni að flokkun virkjunarkosta, sjá frétt á vef rammaáætlunar, http://www.ramma.is/frettasafn/kynningarfundir-um-drog-ad-tillogu-verkefnisstjornar

 

Viðburðurinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/490635784459928/