Kynning á forhönnun leikvallar á „Gamla gæsló“ á Ísafirði

Hluti af forhönnun Gamla gæsló. Smellið á hlekkinn neðst í fréttinni til að skoða skjalið í heild.
Hluti af forhönnun Gamla gæsló. Smellið á hlekkinn neðst í fréttinni til að skoða skjalið í heild.

Unnið er að hönnun leiksvæðis fyrir börn og unglinga á svæði sem gengur gjarnan undir nafninu „Gamli gæsló“ og er við hlið Safnahússins á Ísafirði. Stefnt er að að leiksvæði verði sett upp á árinu 2023.

Forhönnun svæðisins liggur nú fyrir og óskar skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar eftir athugasemdum og ábendingum frá almenningi er varðar hönnunina.

Athugasemdir skulu berast í tölvupósti á netfangið skipulag@isafjordur.is fyrir 20. janúar 2023.

Hægt er að skoða hönnun svæðisins með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

Forhönnun