Kveðja til íbúa Múlaþings og Fjarðabyggðar

Fyrir hönd íbúa Ísafjarðarbæjar sendir bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hlýjar kveðjur austur á land til íbúa þar, sem hafa ekki farið varhluta af snjóflóðum og þeirri óvissu sem nú er á Austfjörðum en einkum í Neskaupstað og á Seyðisfirði þar sem hættustig er í gildi.

Að fenginni reynslu kannast íbúar Ísafjarðarbæjar við þær tilfinningar sem bærast með fólki og viljum við senda baráttukveðjur til alls fólksins fyrir austan.

– Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar –