Kallað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna fyrir framúrskarandi skólastarf

Skóla- og tómstundasvið Ísafjarðarbæjar efnir til hvatningarverðlauna fyrir framúrskarandi skólastarf sem unnin eru í skólasamfélagi Ísafjarðarbæjar. Ein verðlaun eru veitt ár hvert. Markmiðið er að vekja athygli á því gróskumikla skólastarfi sem fram fer í Ísafjarðarbæ. Verðlaunin eiga að veita starfsfólki jákvæða hvatningu og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru viðurkenning á vel unnu verki í þágu barna og foreldra og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Allir geta tilnefnt til hvatningarverðlaunanna; foreldrar, börn, ættingjar, starfsmenn, leik- og grunnskólar, samtök og stofnanir. Tilnefna má nýbreytni- og þróunarverkefni um hvaðeina í skólaskólastarfi í Ísafjarðarbæ, verkefni hópa eða einstaklinga er átt hafa frumkvæði að góðu starfi sem er öðrum til hvatningar, einnig verkefni tengd stefnumótun og skipulagi, foreldrasamstarfi eða öðru samstarfi.
Við val á verðlaunahafa verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka. 

Skilafrestur tilnefninga er til og með 1. maí.

Senda inn tilnefningu


Tengt efni: Tangi hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólaumhverfi 2021