Jólamarkaður Hvestu

Jólamarkaður Hvestu hæfingarstöðvar verður í Gamla pósthúsinu að Aðalstræti 18 föstudaginn 23. nóvember milli klukkan 15 og 17. Handgerðir munir verða til sýnis og sölu og léttar kaffiveitingar verða í boði. Sem dæmi um vörur sem verða í boði má nefna þessi glæsilegu endurunnu kerti, en Hvestufólk hefur verið iðið við að safna kertaafgöngum frá bæjarbúum og endurvinna þá með þessum glæsilega árangri.