Íþróttir og tómstundir veturinn 2017-2018

Hinn tvíárlegi bæklingur um íþróttir og tómstundir í Ísafjarðarbæ er kominn út á heimasíðu bæjarins, undir „útgefið efni“. Í honum er hægt að finna upplýsingar um ýmis konar íþrótta- og tómstundastarf á vegum Ísafjarðarbæjar, íþróttafélaga og tónlistarskóla í sveitarfélaginu, bæði fyrir börn og fullorðna. Þar má einnig finna áætlun strætisvagna og opnunartíma sundstaða svo eitthvað sé nefnt.

Bæklingurinn fer nú í prentun og verður í framhaldinu dreift í öll hús í sveitarfélaginu.