Íþróttir og tómstundir sumarið 2018

Í ár verða upplýsingar um íþróttir og tómstundir eingöngu gefnar út á heimasíðu Ísafjarðarbæjar. Ástæðan er fyrst og fremst sú að félög og hópar sem standa undir þessu þróttmikla starfi eru tilbúin með upplýsingar á misjöfnum tíma. Þannig er hægt að gefa út „rafræna bæklinginn“ þó ekki sé allt tilbúið, og hægt er að fullyrða að meira efni eigi eftir að bætast við þegar dagarnir og vikurnar líða.

Þetta árið verður miði sendur í öll hús í sveitarfélaginu þar sem sagt er frá þessu nýja fyrirkomulagi, sem við vonum að leggist vel í fólk. Upplýsingar má finna á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, undir þjónusta/íþróttir og tómstundir, eða með því að slá inn slóðina https://www.isafjordur.is/is/thjonusta/ithrottir-og-tomstundir/sumar2018