Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2015
20.01.2016
Fréttir
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2015 verður útnefndur við athöfn á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði klukkan 16.00 sunnudaginn 24. janúar. Nanný Arna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar, afhefndir verðlaunin og boðið verður upp á veitingar.
Eftirfarandi eru tilnefndir sem íþróttamenn ársins:
- Elmar Atli Garðarsson (BÍ/Bolungarvík)
- Anton Helgi Guðjónsson (GÍ)
- Kristín Þorsteinsdóttir (Ívar)
- Margrét Rún Rúnarsdóttir (Glímudeild Harðar)
- Hreinn Róbert Jónsson (Handboltadeild Harðar)
- Axel Sveinsson (Fótboltadeild Harðar)
- Nebojsa Knezevic (KFÍ)
- Albert Jónsson (SFÍ)
- Ívar Már Valsson (SkotÍs)
- Guðný Birna Sigurðardóttir (Vestri)
Eftirfarandi eru tilnefndir sem efnilegustu íþróttamenn ársins:
- Jóhanna Jörgensen Steinsdóttir (Skellur)
- Viktor Júlíusson (BÍ/Bolungarvík)
- Jens Ingvar Gíslason (Handboltadeild Harðar)
- Gísli Rafnsson (Fótboltadeild Harðar)
- Rúnar Ingi Guðmundsson (KFÍ)
- Anna María Daníelsdóttir (SFÍ)
Öllum er velkomið að vera viðstaddir kjörið.