Íþrótta- og tómstundalíf í Ísafjarðarbæ

Hinn tvíárlegi bæklingur „Íþrótta- og tómstundalíf í Ísafjarðarbæ“ kemur út á næstu dögum og verður dreift í öll hús í sveitarfélaginu. Bæklingurinn er frekar seint á ferðinni að þessu sinni, en hægt er að glugga í honum nú þegar á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, undir Útgefið efni, eða með því að smella hér.