Íþrótta- og leikjanámskeið Ísafjarðarbæjar hefjast 10. júní

Íþrótta- og leikjanámskeið Ísafjarðarbæjar hefjast 10. júní. Námskeiðin verða þrjú talsins og eru fyrir öll börn fædd 2014-2017.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum vefform.

Námskeiðin verða á eftirfarandi dögum:

10.-15. júní → Verð 6000 krónur
18.-21. júní → Verð 5000 krónur
24.-28. júní → Verð 6000 krónur

Skráningu lýkur kl. 16:00 á fimmtudeginum fyrir námskeiðið sem hefst í vikunni á eftir. Þar sem skipta þarf þátttakendum upp í minni hópa er nauðsynlegt að allar skráningar séu komnar inn í kerfið á réttum tíma. Gætið að réttum netföngum þar sem dagskrá vikunnar og mikilvægar upplýsingar eru sendar með tölvupósti á foreldra/forráðamenn áður en námskeiðið hefst.

Námskeiðin eru alla virka daga frá kl. 9-12. Krakkarnir geta fengið vistun frá kl. 8:30 án skipulagðrar dagskrár.

Um er að ræða hefðbundið námskeið fyrir börn í 1.-2. bekk þ.e, farið verður í leiki, fjöruferðir, hjólaferðir, fjallgöngur, sund, ýmsar íþróttagreinar prófaðar og margt fleira. Mæting fyrir 1.-2. bekk og er við Íþróttahúsið á Torfnesi.

Fyrir börn í 3.-4. bekk verður meðal annars farið í golf, klifur og fleiri fjölbreytt verkefni. 

Á öllum námskeiðunum er nesti borðað um miðjan morgun og koma allir með hollt og gott nesti að heiman.

Rétt er að taka fram að öll eru velkomin á íþrótta- og leikjanámskeið Ísafjarðarbæjar. Nánari upplýsingar veita Daniel Badu yfirþjálfara íþróttaskólans og Dagný Finnbjörnsdóttir á netfanginu dagnyf@isafjordur.is

Upplýsingar um fleiri sumarnámskeið fyrir börn og unglinga eru í rafrænni íbúahandbók Ísafjarðarbæjar, lifid.isafjordur.is.