Ísafjörður: Vatnslokun á efsta hluta eyrarinnar og hluta efri bæjar á mánudaginn

Vegna tengivinnu verður lokað fyrir vatnið í eftirfarandi götum mánudaginn 3. júlí:

Fjarðarstræti 55-59
Eyrargata
Túngata
Krókur
Hlíðarvegur 26 a

Lokað verður kl. 8 og er áætlað að lokunin vari í 2-3 tíma. Þó verður vatnslaust í Eyrargötu 6 og 8 eitthvað fram eftir degi.

SMS um aðgerðir í dag hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.