Ísafjörður: Vatnslaust á gömlu Tungulögninni

Vatnslaust er á gömlu Tungulögninni á Ísafirði sem liggur í hús innst á Seljalandsvegi, Stakkanesi 1-3, Grænagarði, Seljalandi og Skógarbraut.

Svo virðist sem lögn hafi rofnað í kjölfar viðgerðarvinnu fyrr í dag og hefur lekinn ekki fundist. Ekki er hægt að leita í myrkri og því verður vatnslaust til morguns. Íbúar eru beðnir afsökunar á þeim óþægindum sem þessu fylgir.