Ísafjörður: Tímabundin þrenging í Sólgötu

Vegna framkvæmda við vatnsveitu verður tímabundin þrenging fyrir bílaumferð í Sólgötu á Ísafirði. Vinnan mun standa yfir næstu daga og eru vegfarendur beðnir um að hafa varann á og minnka hraðann þegar ekið er í gegn.