Ísafjörður: Skipagöturóló lokaður í næstu viku

Unnið verður að viðgerðum og viðhaldi á Skipagöturóló á Ísafirði í næstu viku, dagana 10.-14. júlí, og verður leikvöllurinn lokaður á meðan þessi vinna stendur yfir. Meðal annars verða leiktæki og grindverk máluð, skipt um mottur og fleira.