Ísafjörður: Lokað fyrir vatn neðst á Skutulsfjarðareyri kl. 16 í dag

Lokað verður fyrir vatnið í götum fyrir neðan Mjósund á Ísafirði kl. 16 í dag, þriðjudaginn 11. júlí, vegna viðgerðarvinnu.

Lögnin sem loka þarf á er með þeim eldri í kerfinu og því ekki alveg ljóst hvaða byggingar verða vatnslausar. Áætlað er að viðgerðarvinna standi yfir í tvo til þrjá klukkutíma.