Ísafjörður: Lokað fyrir vatn á efri hluta eyrarinnar föstudaginn 21. júní

Vegna viðgerðarvinnu verður lokað fyrir vatnið kl. 8-12 föstudaginn 21. júní í eftirfarandi götum á Ísafirði:

Eyrargötu 2
Fjarðarstræti 26-47
Hrannargötu
Mánagötu
Mjallargötu
Pólgötu

SMS um vatnslokun hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.