Ísafjörður: Bilun í vatnslögn
17.02.2020
Ýmsar tilkynningar
Ísafjörður: Unnið er að viðgerðum vegna bilunar í vatnslögn í Krók og hefur vatn verið tekið af húsum í Túngötu og blokkunum efst í Fjarðarstræti. Bilunin er umfangsmikil og má búast við að viðgerðavinna muni standa fram á kvöld, mánudaginn 17. febrúar.