Ísafjörður: Aftur lokað fyrir vatn neðst á eyrinni í dag, miðvikudag

Aftur verður lokað fyrir vatnið í götum fyrir neðan Mjósund á Ísafirði kl. 16 í dag, miðvikudaginn 12. júlí, vegna viðgerðarvinnu.

Lögnin sem loka þarf á er með þeim eldri í kerfinu og því ekki alveg ljóst hvaða byggingar verða vatnslausar. Áætlað er að viðgerðarvinna standi yfir í tvo til þrjá klukkutíma.