Ísafjarðarbær fær rúmar níu milljónir úr Framkvæmdasjóði aldraðra
Nýlega var úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra og hlaut Ísafjarðarbær samtals 9.446.817 kr. úr sjóðnum vegna fjögurra verkefna sem öll eru á Hlíf á Ísafirði. Styrkir hlutust vegna:
- Framkvæmdir á hreinlætisaðstöðu á Hlíf 2.193.200
- Bættur aðbúnaður í mötuneyti 1.192.985
- Carendo rafknúinn sturtustóll 210.602
- Innri endurbætur 5.850.030
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra og er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins. Rúmlega einum milljarði króna var veitt úr sjóðnum að þessu sinni, sem er hæsta úthlutunin til þessa.
Sjóðurinn er fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru á aldrinum 16-70 ára, samkvæmt lögum um tekjuskatt. Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagdvala, að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagdvalar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.