Íbúafundur: Skipulag útivistarsvæða í Tungudal og Seljalandsdal
06.03.2020
Ýmsar tilkynningar
Starfshópur um skipulag útivistarsvæða í Tungudal og Seljalandsdal boðar til íbúafundar kl. 20:00 þriðjudaginn 10. mars, í fundarsal á fjórðu hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.
Á fundinum mun fulltrúi Verkís kynna vefsjá sem hefur verið sett upp þar sem hægt er að skoða skipulagssjá og framtíðarsýn fyrir svæðið. Í kjölfar fundarins verður vefsjáin opnuð fyrir íbúa.