Íbúafundur á Þingeyri - Frestað

Haldinn verður íbúafundur á Þingeyri þar sem bæjarstjóra, bæjarritara, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, bæjarfulltrúum og íbúum gefst kostur á að hittast og ræða þau mál sem á þeim brenna, svo sem umhverfismál, framkvæmdir, samfélagsmiðstöðina Blábankann, hverfisráð og framkvæmdafé hverfisráðsins.

 

Fundurinn verður haldinn í Stefánsbúð, 2. hæð á Þingeyri mánudaginn 22. maí n.k. kl. 20:30.