Íbúafundur á Suðureyri

Haldinn verður íbúafundur á Suðureyri þar sem bæjarstjóra, bæjarritara, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, bæjarfulltrúum og íbúum gefst kostur á að hittast og ræða þau mál sem á þeim brenna, svo sem umhverfismál, framkvæmdir, skipulagsmál, hverfisráð og framkvæmdafé hverfisráðsins.

 

Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Suðureyri mánudaginn 22. maí n.k. kl. 20:00.