Íbúafundur á Flateyri

Haldinn verður íbúafundur á Flateyri þar sem bæjarstjóra, bæjarritara, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, bæjarfulltrúum og íbúum gefst kostur á að hittast og ræða þau mál sem á þeim brenna, svo sem umhverfismál, framkvæmdir, skipulagsmál, íbúasamtökin og framkvæmdafé íbúasamtakana.

 

Fundurinn verður haldinn í Félagsbæ, Flateyri, mánudaginn 29. maí n.k. kl. 17:00.