Hundur í óskilum

Þessa litla og gæfa tík reyndi að fá herbergi á Hótel Ísafirði í nótt. Varð henni lítið ágengt og var að endingu látin gista fangageymslur, þrátt fyrir að hafa fátt til saka unnið, fram á morgun. Kunni hún vistinni afskaplega vel og er nú komin í gott yfirlæti í áhaldahúsið á Stakkanesi þar sem hún bíður þess að eigandi sinn sæki sig.